eyk leiðbeiningar

Reglur, rásir og atvik

Hvenær eyk lætur vita og hvert.

Regla segir eyk hvenær mæling er óeðlileg. Þegar regla á við opnar eyk atvik og lætur vita á þeim rásum sem reglan nefnir, til dæmis í tölvupósti. Þessi kafli er í vinnslu; hér er fyrst lýst prófum reglu.

Próf

Próf reglu ber saman einn reit mælingar við gildi: reit, virkja og gildi, til dæmis „Hitastig > stærra en 25“. Regla getur haft fleiri en eitt próf, og þá verða öll prófin að eiga við sömu mælinguna. „Hitastig yfir 25 og vindhraði yfir 10“ er því ein regla með tveimur prófum, ekki tvær reglur.

  • Reitur er eitt af því sem uppsprettan mælir, til dæmis hitastig eða vindhraði.
  • Virki fer eftir því hvort reiturinn er tala eða texti. Tölur má bera saman með „stærra en“, „minna en“ og fleiru; texta aðeins með „jafnt og“, „ekki jafnt og“, „er eitt af“ og „er ekkert af“.
  • Gildi er talan eða textinn sem borið er saman við. Með „er eitt af“ og „er ekkert af“ eru gildin aðskilin með kommu.

Hér er prófahlutinn úr forminu fyrir nýja reglu, með dæmigögnum. Það má breyta honum, en ekkert er vistað.

Hvert próf á við sömu mælingu - "hiti yfir 90 og þrýstingur undir 2" er ein regla með tveimur prófum, ekki tvær reglur.

Á þessari síðu